Mellur GROUP

Stelpurnar ... stundum ..

22.04.2009 12:21:00 / Kristrún

Hvar er sumarið???

Ohh mig dreymir um sumar og sól, og núna sérstaklega þegar ég heyri rigninguna lemja gluggana að utan....

Er nýkomin heim að utan frá Spáni með familíunni, en mamma og pabbi voru að fjárfesta í fasteign  þarna úti. Það var mjög næs úti og veðrið ágætt. Maður náði aðeins að sóla sig og spandera aurum í verslunum, sem er ekki verra  :haha:
Það eina sem ég keypti eiginlega úti voru sumarföt og sandalar, svo ég bíð eftir sumrinu með óþreyju, er komin með nóg af vetri og kulda...vil fara geta notað sandalana mína með lakkaðar tásur og svonna.

En stefnan er tekin á að fara aftur út í sumar í húsið, líklegast þá í lok júlí....get án gríns ekki beðið. Enda þá  verð ég búin að útskrifast og komin í sumarfrí....ohhhh það verður sko næææææs!!!

En þangað til later...

xoxo

Ylfa skrifaði
Vei Kristrún, blogg .. gott framtak!
Ylfa og Krúna 1, restin 0 ...
Já ég er ekki sátt við þetta veður, aaaalveg glatað, manni finnst frekar eins og það sé leiðindahaust en að það sé að koma vor. Jæja, þetta er vonandi bara einhvers konar fyrirboði um gott sumar.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  55  Alls: 300297
Dagatal
Leitarbox

RSS tengill
Fólk
Mellurnar
Hópur af gullfallegum stúlkum á 25. aldursári. Eru flestar á Fróni en sumar hverjar erlendis. Hæfileikaríkari og skemmtilegri hóp ungra kvenna er erfitt að finna.